Spurning

Heilsa og vellíðan > Náttúruvörur > Spurt og svarað > Er munur á að taka glucosamin eitt eða með Chondrotin
Er munur á að taka glucosamin eitt eða með Chondrotin
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Mig langar að vita hver munurinn er á að taka Glucosamine og Chondrotin saman og Glucosamine eingöngu.

Svar:

Sæl

Betri rannsóknir eru á bak við gagnsemi þess að taka glucosamin eitt heldur en chondrotin og glucosamin saman. Talið er þó að bæði efni hafi góð áhrif á uppbyggingu í lið þó svo að glucosamin hafi meira með uppbyggingu brjósks að gera en chondrotin með smurningu í lið að gera. Bæði þessi efni finnast í liðum. Glucosamin eitt og sér hefur nýlega verið skráð sem lyf í mörgum löndum. Þó ekki hér á landi. Á bak við það lyf liggja ágætis rannsóknir varðandi gagnsemi gegn brjóskeyðingu í lið (osteoarthritis). Ef þú ert að spyrja hvort er betra að taka glucosamin eitt eða með chondrotin, er erfitt að svara af eða á en allavega mjög góðar rannsóknir eru til um gagnsemi glucosamins án chondrotin.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur