Spurning

Heilsa og vellíðan > Náttúruvörur > Spurt og svarað > Má nota Melantónín með Evra hormónaplástri?
Má nota Melantónín með Evra hormónaplástri?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Halló ég er kona og verð 40 á árinu, ég hef átt erfitt með svefn í langann tíma og ákváð að prófa lyfið Melatonin, sem er að hjálpa mér að sofa betur, enn ég er líka að nota getnaðarvörnina Evra sem er plástur, mig langar að vita hvort það er í lagi að nota þetta saman.

fyrirfram þökk

Svar:

Sæl

ins og með mörg af þessum náttúruefnum þá liggja ekki fyrir nægjanlega góðar upplýsingar um þessi mál, þannig að hægt sé að svara þessu nákvæmlega. Getur lesið meira um melantónín hér.

Það eru þó til vísbendingar um að melatónín geti haft áhrif á magn kynhormóna í konum en það er þó ekki staðfest síðast þegar ég vissi. Samkvæmt rannsókn rúmlega 30 konum, sem tóku melatónín í fjóra mánuði ásamt prógestíni, getur melatónín hindrað egglos. Það er því möguleiki að það geti haft áhrif á hormónabúskap þinn og þ.a.l. áhrif á meðferðina með Evra plástrinum. En eins og ég sagði áðan er þetta allt illa rannsakað og óstaðfest. Hafðu þetta því í huga ef þú verður var við einhver óæskileg einkenni og hafðu samráð við lækni.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur