Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
SH spurði:
Getið þið bent mér á einhver vítamín eða bætiefni hvort sem náttúruleg eða ekki sem geta gert brjóskeyðingu léttbærari.
Svar:
Það sem gæti helst hjálpað eru efnin glúkósamín og kondróitín. Þessi efni myndast í líkamanum og viðhalda eðlilegu brjóski. Nokkrar rannsóknir hafa bent til þess að inntaka efnanna dragi úr bólgu og verkjum vegna liðagigtar, og því mætti ímynda sér að þau gerðu eitthvað gagn gegn brjóskeyðingu.
Þessi efni fást í apótekum og eru til frá nokkrum framleiðendum, t.d. sem Glucosamine & Chondroitin og sem Liðaktín.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur