Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Dísa spurði:
Er í lagi að taka öll fjölvítamín ef maður er ófrísk. Mælið þig með einhverju sérstöku? Ég er komin 11 vikur og er alltaf þreytt. Ég tek fólínsýru og borða allan mat.
Svar:
Ófrískar konur hafa aukna þörf fyrir vítamín. Og þá á ég við A,B,C,D,E,K, osfv. En ég hef tekið eftir því að ýmsir kalla ýmis náttúruefni t.d. gingsen vítamín, sem þau eru að sjálfsögðu ekki. Það er því í góðu lagi svo fremur sem meðgangan er eðlileg að taka fjölvítamín. T.d. Pregnacare sem er sérstaklega hugsað fyrir ófrískar konur. Einnig kæmi Vítaplús eða eitthvað sambærilegt til greina en það er ódýrt fjölvítamín sem innihaldur 100% ráðlagðan dagskammt allra vítamína og er einnig ríkt af steinefnum. Það myndi þannig tryggja þig og fóstrið gegn vítamínskorti, sem reyndar er ólíklegt að upp komi ef þú borðar fjölbreitt fæði.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur