Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Lovísa spurði:
Hvað getið þið sagt mér um vítamínið K2 sem er verið að auglýsa svo mikið? Fyrir hverju er þetta og hvaðan kemur þetta?
Svar:
Vítamín K er mjög mikilvægt, en án þess myndi blóð ekki storkna. Þ.a. ef maður fengi blæðandi sár væri hætta á því að manni myndi blæðaút.
Það eru til 3 gerðir af K vítamíni náttúrulegu K1(phylloquinone) og K2 (menaquinone) , K3 (menadione) er efnaframleiðsla. K1 og K2 er breytt í K3 í líkamanum þ.a. og virkni þeirra er nánast sú sama.
K1 fæst aðalega úr grænmeti en K2 er framleitt m.a. af gram pósitífum bakteríum. Það er auðveldara (ódýrara) að einangar það heldur en K1, og notað því meir í náttúruefnaiðnaðinum.
Í læknisfræðilegum tilgangi er K vítamín aðalega notað til þess að hafa áhrif á blóðstorknun t.d. vegna of stórra skammta af blóðþynningarlyfjum. Nýfæddum börnum er gefin K vítamín sprauta til þess að koma í vegfyrir blæðingarvandamál.
Ráðlagður dagskammtur af K vítamíni er mjög lítil eða um 1 þúsundasti (míkrógramm) úr grammi á dag per kíló einstaklings.
Vítamín K finnst í mörgum fæðutegundum, grænmeti m.a spínati, brokkoli, einnig grænum baunum, höfrum, heilhveiti, ofl. og eins og áður sagði eru framleidd þ.e. K2 af bakteríum í þörmum. Það að taka sýklalyf til langstíma getur haft áhrif á þessa bakteríur (fækkað þeim)og þ.a.l minnkað framleiðslu þeirra á K vítamíni. Skorts einkenni hafa einnig komið fram í ofdrykkjumönnum/konum, fólki með sjúkdóma í meltingarvegi eins og krónískan niðurgang, ulcerative colitis, Crohns sjúkdóm os.fv. Konur á meðgöngu og við tíðarhvörf fá einnig stundum skortseinkenni. Skortur á K vítamíni er þó sjaldgæfur. Skýringin sú að það finnst í fjölmörgum mat, er framleitt í líkamanum, og líkamin þarf mjög lítið af því.
Önnur óhefðbundin notkun á K vítamíni er illa rannsökuð og óstaðfest. Þetta er t.d. notkun gegn beinþynningu, ógleði, miklum tíðablæðingum. Um gagnsemi gegn beinþynningu eru þó til rannsóknir sem maður túlkar sem vísbendingu um gagnsemi.
Þeir sem taka inn lyf til blóðþynningar (t.d. Kovar) eiga alls ekki að taka inn stóra skammta af K vítamíni nema í samráði við lækni, vegna þess að vítamínið vinnur gegn virkni blóðþynningarinnar.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur