Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Munnsár. spurði:
Ég þjáist mjög af munnangri og sárum í munni. Mér var ráðlagt að taka B vítamín og þá myndu sárin minnka sem reyndist og raunin. Mín spurning er ´hins vegar sú, er ofskömtun b-vítamíns hættuleg, hvernig lýsir ofskömmtun sér og hversu mik
Svar:
B-vítamín gegna mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Ef nægilegt magn af B-vítamínum fæst ekki úr fæðu getur það valdið margvíslegum einkennum, meðal annars geta sár verið lengi að gróa. Það er ekki ólíklegt að vægur B-vítamínskortur hafi verið ástæðan fyrir því að sárin gréru ekki, og því hafi hjálpað að taka B-vítamín inn.
Mjög stórir skammtar af pýridoxíni (B-6) og nikótínsýru geta verið skaðlegir, en þeir skammtar eru mun stærri en fást úr sterkum B-vítamíntöflum. Einkenni hafa komið fram eftir að taka 200 mg á dag af pýridoxíni (það eru 15 mg í hverri töflu af sterkum B-kombín), 2-6 g á dag af nikótínsýru geta valdið ofskömmtunareinkennum (60 mg í sterkum B-kombín). Ofskömmtunareinkenni hafa ekki komið fram af öðrum B-vítamínum en þessum tveim.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur