Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
BMS spurði:
Hvaða vítamín eða steinefni vantar þegar marblettir myndast af litlu áreiti?
Svar:
Orsökin getur verið vægur C-vítamínskortur. C-vítamín tekur þátt í myndun bandvefs, m.a. í æðaveggjum. Venjulegur dagsskammtur af C-vítamíni er 60 mg fyrir fullorðna.
Ef C-vítamín er tekið í stórum skömmtum í langan tíma fer líkaminn að skilja það út hraðar. Þar af leiðandi geta komið fram væg skortseinkenni þegar töku á stórum skömmtum er hætt, þó að dagsskammtur fari ekki niður fyrir 60 mg.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur