Spurning

Heilsa og vellíðan > Vítamín > Spurt og svarað > Hvaða vítamín hentar 2ja ára barni með ljósfælni?
Hvaða vítamín hentar 2ja ára barni með ljósfælni?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Móðir spurði:
Hvaða vítamín hentar 2 ára gömlu barni sem er með ljósfælni, þolir illa að vera í sól?

Svar:

Ef barnið þolir illa að vera í sól þarf það frekar að taka D-vítamín en önnur börn, en sólskin örvar myndun D-vítamíns í húð. Að öðru leyti er þörfin fyrir vítamín sú sama og hjá öðrum börnum.

Það er sennilega einfaldast að gefa barninu fjölvítamín tuggutöflur, t.d. Multi Tabs, sem fást í apótekum.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur