Spurning

Heilsa og vellíðan > Vítamín > Spurt og svarað > Vítaplús er það nóg
Vítaplús er það nóg
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er nóg fyrir konur fyrir og í upphafi meðgöngu að taka Vítaplús ?
Skaðar eitthvað að taka auka fólínsýru?

Hvað með Omega-3 perlur? Eru þær góðar með Vítaplús frekar en Lýsi?

Svar:

Sæl

Það ætti að fullnægja RDS að taka vítaplús og því óþarfi að vera að taka annað. Ekki taka Lýsi með Vítaplús því þá ertu að fá mögulega of mikið af A- og D-vítamíni en slíkt getur valdið alvarlegum eitrunum, þótt sjaldgæft sé.

Það er óþarfi að taka auka fólinsýru er óþarfi með Vítaplús því RDS fyrir konur á meðgöngu er 400 míkrógrömm jafn mikið og í Vítaplús.

Omega-3 inniheldur ekki vítamín og er því óhætt að taka með Vítaplús sem er fjölvítamín með 100% RDS allra vítamína.

kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur