Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Geta þunglyndislyf haft þyngdaraukningu í för með sér hjá börnum.Dóttir mín er á þunglindislyfi og hefur bætt vel á sig þrátt fyrir að æfa sund 3-4 sinnum í viku og ganga mikið. Ef svo er hvað er til ráða?
Svar:
Það hefði verið ágætt að taka fram hvaða lyf dóttir þín er að taka, og hve lengi, hversu mikið hún hefði þyngst, og hve gömul hún er. Án þess að vita það er erfitt að svara þessari spurningu nema mjög alment.
Sum þunglyndislyf geta haft þá aukaverkun að valda þyngdaraukningu þá í börnum jafnt sem fullorðnum. Mismunandi lyf hafa þó mismunandi tíðni þessarar aukaverkunar. Það getur vel verið að annað lyf muni henta betur varðandi þessa aukaverkun heldur en dóttir þín er að nota nú. En það getur líka verið að það lyf verki ekki eins vel á þann sjúkdóm sem það var ávísað á, þunglyndið.
Það er því engin töfralausn varðandi aukaverkanir lyfja önnur en sú að hætta að nota þau eða skipta þeim út fyrir eitthvað annað lyf. Aukaverkanir eru stundum tímabundnar og ganga yfir eftir að lyfið hefur verið notað í einhvern tíma, þetta er þó frekar undantekning heldur en regla. Það er einnig stundum litið framhjá þeim sem vægar eru miðað við kosti þess sem verkun lyfs gefur. Þunglyndislyf eru einnig venjulega notuð í skamman tíma í senn, nokkra mánuði og svo endurskoðað hvað á að gera.
Þetta er eitthvað sem þú skalt ræði við lækni dóttur þinnar og í samráði við hann ákveða hvað gera skal.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur