Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
HB spurði:
Má ég, þar sem ég er staddur erlendis koma heim með lyf sem er undanþáguskylt á Íslandi? Þetta er Melatonin sem er selt í matvörubúðum þar sem ég er staddur. Hversu mikið má ég koma með til einkanota? Gott ef hægt er að fá svar fyrir 17.mars.
Svar:
Melatónín er flokkað sem lyf á Evrópska efnahagssvæðinu. Um það gilda því sömu reglur og um innflutning annarra lyfja. Einstaklingar mega taka með sér 100 daga skammt af lyfjum til eigin nota til landsins, en tollurinn getur farið fram á læknisvottorð til að staðfesta að lyfin séu nauðsynleg (sjá reglugerð nr. 212/1998, undir "lyfjalöggjöf" á heimasíðu Lyfjastofnunar).
Þar sem melatónín er flokkað sem lyf má ekki taka það með sér heim fyrir annan aðila, þar sem slíkt væri í raun ólöglegur lyfjainnflutningur og dreifing.
Þessar reglur virðast kannski óeðlilega strangar, en þess má þó geta að lyf geta verið skráð hér á landi meðan þau eru ólögleg annars staðar. Til dæmis mætti nefna svefnlyfið Rohypnol, en dæmi eru um að menn hafi lent í fangelsi fyrir að taka nokkrar töflur af því með sér héðan til Bandaríkjanna.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur