Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég lenti í slysi fyrir 6 árum með því leiðandi að ég fékk krónískan höfuðverk frá hálsliðum. Vegna vanlíðan var ég sett fyrst bara á amilín 25 mg á dag (morgnanna) en núna er morgunskammturinn 40 mg Seról, 20 mg amilín yfir daginn (10 um hádegi og 10 um eftirmiðdaginn) og svo 75 mg amilín fyrir svefninn. Það er stutt síðan amilíninu var bætt inn í um daginn en ég hef fundið fyrir skrítnum einkennum. Þau lýsa sér sem miklum ósjálfráðum taugakippum í höndum og þegar verst er þá fara kippirnir einnig í fæturna
Svar:
Seról og Amilin geta mögulega milliverkað. Sú milliverkun getur haft þau áhrif að virkni Amilíns eykst. Nú eru þekkt einkenni þessarar milliverkanar munnþurrkur og slæving. Það kemur þó ekki heim og saman við þau einkenni sem þú lýsir sem ósjálfráðum taugakippum í höndum og fótum, þannig að ekki er líklegt að þessi mögulega milliverkun geti verið orsökin fyrir þinni vanlíðan. Það er þó ráðlagt fyrir þig að ræða þennan möguleika við þinn lækni.
Seról getur haft aukaverkun sem hefur svipuð einkenni og þú lýsir. Þ.e. Óeðlilegar hreyfingar/sjálfti. Þennan möguleika skalt þú einnig ræða við þinn lækni.
Nú er ég lyfjafræðingur og leita því fyrst að skýringu út frá lyfjum, það geta verið aðrar orsakin og þær sem ég bendi á eru einungis mögulegar.
Nú spyrð þú hvert þú eigir að leita. Mér finnst eðlilegt að þú leitir til þess læknis sem ávísaði þessum lyfjum fyrir þig og þekkir þína sjúkrasögu best. Einnig langar mig að benda þér á nýja þjónustu sem Lyfja býður upp á og er kölluð Lyfjafræðileg umsjá. Þá pantar þú tíma hjá Lyfjafræðingi í Lyfju Smáralind og saman getið þið farið yfir þessi mál þeð þínu samþykki og þínum lækni.
Kveðja Friðþjófur M. Sigurðsson lyfjafræðingur