Spurning

Að taka inn lyf > Lyf > Spurt og svarað > Hvað eru MAO-hemjandi lyf?
Hvað eru MAO-hemjandi lyf?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hvað eru MAO-hemjandi lyf?

Svar:

MAO-hemjarar er flokkur lyfja sem notuð hafa verið í nokkra áratugi. Þau eru notuð m.a. gegn geðdeyfð og félagsfælni. Dæmi um slíkt lyf er Moclobemíð (Aurorix, Áról, Rimarix). Vona að þetta dugi, ef ekki spurðu þá bara aftur.

Kveðja Friðþjófur M. Sigurðsson lyfjafræðingur