Spurning

Að taka inn lyf > Lyf > Spurt og svarað > Hvaða lyf eru Advil og Furabid?
Hvaða lyf eru Advil og Furabid?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Mig langar að fá upplysinga um lyf hér Hollandi og það heitir Advil400 og málið er að ég fæ svo mikið brjósviða við þessum töflum og líka illt í magan .

Svo er það annað að ég fékk lyf sem er fyrir blöðrubólgu og heitir það furabid100mg capsule mga og hvað er í þeim og líka tekur maður bara 4 daga að jafna sig og er ég búin en mér finnst það ekkert virka

Svar:

Sæl

Advil400 er samheitalyf við lyf sem við þekkjum hér á landi sem Íbúfen. Langtímanotkun þess getur haft áhrif á magaslímhúðina og þ. a. l. valdið mögulega þessum einkennum sem þú lýsir. Hafðu samráð við læknin þinn varðandi það og einnig varðandi sýklalyfið sem þú tekur, við blöðrubólgunni.

Furabid er lyf sem ekki hefur markaðsleyfi hér á landi. Þetta er gamalt sýklalyf sem mikið hefur verið notað og þykir mjög gott lyf við þvagfærasýkingum. Virka innihalds efni þess er nítrófúrantóín. Ef þér finnst það ekki virka er einnig ástæða til þess að hafa samráð við læknin þinn og spurning um að gera næmispróf á bakteríunum hjá þér til þess að fá úr því skorið hvort þetta lyf virkar.

Kveðja úr kuldanum
Friðþjófur Már sigurðsson lyfjafræðingur.