Orfiril og þyngdaraukning?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er búin að vera flogaveik í 6 ár eða síðan ég var 12 ára. Ég tek alveg fáránleg lyf sem ég fitnaði um 20 kíló á 1. árið. Þau heita ORFIRIL. Geturðu sagt mér e-ð frá þeim og eru líkur að ég geti fengið önnur í staðinn? Með fyrirfram þökk. siljai

Svar:

Sæl

Nú er ómögulegt fyrir mig að svara því hvort Orfiril sé eini sökudólgurinn í þessari þyngdaraukningu. Kynþroski og fleira getur spilað þarna inní. Það er þó alveg ljóst að Orifril getur valdið aukinni matarlyst og þyngdaraukningu. Það er ein algengasta aukaverkun þess. Nú spyrðu um hvort þú getir fengið önnur lyf. Auðvitað eru til önnur flogaveikilyf en spurningin er hvort þau henti þér eitthvað betur. Þú nefnir ekki hversu vel gangi að halda flogunum í skefjum, en ef vel gengur með það er líklega ekki ástæða til þess að vera að hræra neitt með lyfjagjöf þína.

Því miður er það oft þannig að meta þarf kosti lyfjameðferðar v.s. ókosti. Kosturinn að stöðva flog sem geta mögulega verið lífshættuleg móti ókostinum að þyngjast. Flogaveiki er því miður oft nokkuð erfiður sjúkdómur að ráða við.

Þetta er eitthvað sem þú skalt tala um við þinn lækni og saman getið farið betur í gegnum þessi mál og tekið ákvörðun saman um hvort þörf sé á breytingum.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.