Spurning

Að taka inn lyf > Lyf > Spurt og svarað > Addison´s sjúkdómur
Addison´s sjúkdómur
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Spurningin er hvað er Addisonsjúkdómur og eigið þið einhverjar upplýsingar um þennan sjúkdóm?

Svar:

Addison´s sjúkdómur er sjaldgæfur innkirtla- eða hormónasjúkdómur. Árlega greinast um 0-3 einstaklingar með þennan sjúkdóm á Íslandi. Um 25-30 manns eru haldnir sjúkdóminum hérlendis.
Sjúkdómurinn veldur þyngdartapi, vöðvarýrnun, þreytu, lækkuðum blóðþrýstingi og dekkri húð og gerir engan greinarmun á aldri eða kyni.

Ástæðan fyrir þessum sjúkdómi er að nýrnahetturnar framleiða ekki nóg af hormóninu kortisóli og í sumum tilfellum hormóninu aldósteróni.

Kortisól er svokallaður sykurhrífandi steri sem hefur áhrif á nánast hvert einasta líffæri líkamans. Mikilvægasta starf þess er að hjálpa líkamanum að bregðast við stressi, en meðal annarra hlutverka þess í líkamanum er að taka þátt í stjórnun blóðþrýstings og hjartastarfsemi, hjálpa ónæmiskerfinu og að hafa áhrif á starfsemi insúlíns svo fátt eitt sé nefnt.

Aldósterón tilheyrir flokki hormóna sem nefnast saltsterar. Hlutverk þess í líkamanum er að viðhalda réttum blóðþrýstingi auk þess að taka þátt í vatns- og saltbúskapi líkamans.

Því miður hef ég ekki á reiðum höndum íslenskar upplýsingar um þennan sjúkdóm en ég get hins vegar bent þér að eftirfarandi erlenda heimasíðu sem fjalla sérstaklega um Addison´s sjúkdóm: NIDDK

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur