Eru til lyf til þess að hjálpa mér að hætta að reykja?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Mig langar til að hætta að reykja. Ég hef oft hætt áður og það sem hefur hindrað mig í öll skiptin er mikið þunglyndi og sorg. Þetta er aðalhræðsla mín við að hætta núna.
Ég hef heyrt að til sé lyf við þessu og að það eigi að taka í mánuð áður en hætt er reykingum.
Er þetta eitthvað sem ég get kynnt mér betur? Hvað fæ ég nánari ráðgjöf?

Kveðja
S

Svar:

Sæl

Já slík lyf eru til. Þeim má skipta í 2 hópa.

1. Lyf sem innihalda nikótín og eru ætluð til þess að hjálpa manni að hætta að reykja og minka þörf á nikótíni í skrefum. Þetta er góð og gild aðferð ef notað rétt og rannsóknir sína að einstaklingur sem ætlar að hætta að reykja er helmingi líklegir til þess að takast það með hjálp nikótínlyfja. Nánari upplýsingar getur þú fengið hjá lyfjafræðingum í næstu Lyfju.

2. Zyban
hjálparlyf til að hætta reykingum. Lyfið inniheldur ekki nikótín en það hefur áhrif á sömu boðefni í heila og nikótín og dregur þar af leiðandi úr fráhvarfseinkennum og löngun í að reykja. En þau geta einmitt verið þunglyndi og sorg eins og þú lýsir. Zyban er lyfseðilskylt og þú þarft því að ráðfær þig við lækni. Mælt er með því að byrja lyfjameðferð áður en reykingum er hætt. Best er að hætta að reykja um 8 dögum eftir að lyfjameðferðin hefst. Rannsóknir sýna að Eftir 1 ár frá meðferð halda um 30% ennþá reykbindindi

Gangi þér vel að hætta.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.