Hvenær rennur Pevisone út?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er með Pevisone með pökkunardag 27. Janúar á þessu ári en það er ekki skráð hvort það rennur út eða ekki. Er nokkuð ákveðin tími sem þetta lyf virkar í?

Svar:

Sæll

Pevisone er ekki merkt með framleiðslu degi svo ég viti til, það er aftur á móti merkt með lotu og fyrningar degi. Þetta stendur bæði á kassanum sem lyfið kemur í og á túpunni sjálfri. Farðu með túpuna í næstu Lyfju og fáðu lyfjafræðing til þess að lesa á hana fyrir þig og meta hvort lyfið er í lagi til notkunar. Pevisone geymist í 4 ár frá framleiðsludegi í óoppnuðum umbúðum.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.