Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Eru milliverkanir á Zoloft og Lexotan? Hef t.d. fundið fyrir vöðvatitringi við litla áreynslu, en hef ekki séð að það sé aukaverkun af hvorugu lyfinu ...
Svar:
Sæll
Þessi lyf hafa ekki þekkta milliverkun. Þannig ólíklegt er að þetta stafi af milliverkun milli þeirra. Þetta gæti þó stafað af aukverkun annað hvort vegna Zoloft eða Lexotan þó ólíklegt sé, því bæði lyf geta valdið aukaverkunum sem gæti lýst sér í því sem þú kallar vöðvatitring. Hafðu samráð við lækni til að fá úr því skorið.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur