Má taka Treo og Zantac saman

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Má taka Treo og Zantac saman

Svar:

Sæl

Má og má ekki. Treo inniheldur asetýlsalicýlsýru og koffein. Bæði þessi efni þykja ekki æskileg í einstaklinga sem eru veikir fyrir í maga eða magaslímhúð. En bæði koffein og asetýlsalicýlsýra eru þekkt fyrir geta haft slæm áhrif á magaslímhúð. Þannig gæti langtímanotkun (regluleg notkun) á Treo haft neikvæð áhrif á þann bata sem vonast er til að náist með Zantac. Það væri því sennilega skynsamlegra að velja annað verkjalyf, og þá helst eitthvað sem er ekki bólgueyðandi. En það loðir við öll bólgueyðandi verkjalyf að geta haft neikvæð áhrif á magaslímhúð. Panodil Brus væri mögulega betri kostur en það er ekki í flokki bólgueyðandi verkjalyfja.

Þannig þessi lyf milliverka ekki beint. En Treo getur haft neikvæð áhrif á bata sem næst með notkun Zantac. Sérstaklega líklegt ef
notkun Treo er regluleg. Að öðru leiti eru áhrifin líklega lítilvægileg.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.