Af hverju fæ ég bara eitt glas af Íbúfeni?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Af hverju fæ ég bara eitt glas af Íbúfeni?

Svar:

Þú skalt ekki taka þessu neitt persónulega, starfsfólk apótekanna er einfaldlega að framfylgja lögum. Það eru ákveðin lyf sem apótek mega selja í lausasölu og oft í takmörkuðu magni. Einstaka viðskiptavinir eiga erfitt með að kyngja þessari reglu, og tala um forræðishyggju, hræsni og annað í þeim dúr. Staðreyndin er sú að þessi lyf eru oftast ætluð til skammtímanotkunar við algengum kvillum og þeir skammtar sem leyfilegt er að selja ættu að duga í flestum tilfellum. Ef þeir duga ekki, þá ætti það að vera tilefni til að líta nánar á vandamálið, jafnvel með heimsókn til læknis í huga. Þú nefnir Íbúfen sérstaklega, en það er einmitt algengast að fólk kvarti yfir því að geta aðeins keypt takmarkað magn af verkjalyfjum í lausasölu. Ýmir hefur áður svarað svipaðri spurningu. Svar hans er hér.
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.