Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
P spurði:
Ég hef verið með óþægindi í maganum og tekið Asýruna. Mér fannst það ekki virka nægilega vel og fór að nota Zantac og hefur það reynst mér betur, en ég hélt að þetta væri í raun sama lyfið. Er e-r munur á þeim?
Svar:
Bæði Asýran og Zantac innihalda bæði virka efnið ranitidín. Þau eru skráð sem jafngild, sem þýðir að þau uppfylla sömu kröfur og dreifing virka efnisins um líkamann er sambærileg hjá báðum lyfjum. Munurinn á samheitalyfjum liggur í því að hjálparefni sem notuð eru við lyfjagerðina, t.d. fylli- eða litarefni, eru ekki endilega þau sömu. Í langflestum tilfellum ætti ekki að finnast munur á samheitalyfjum, en þar sem innihald er ekki nákvæmlega það sama er ekki útilokað að í einhverjum tilfellum finni fólk mun á virkni þeirra. Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur