Spurning

Að taka inn lyf > Lausasölulyf > Spurt og svarað > Íbúfen og áfengi?
Íbúfen og áfengi?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

brynja1 spurði:
Íbufen og áfengi? Ég hef þurft að vera á íbífeni (400) í nokkra mánuði og þegar ég fæ mér í glas þá þarf ég minna en venjulega til að finna á mér og verð ekkert þunn daginn eftir! Er hættulegt að blanda þessu saman?

Svar:

Sæl B Áfengi í hófi hefur ekki áhrif á Íbúfen. Segja má að "eðlilegt" sé að þú finnir minna fyrir þynnku daginn eftir því þú ert að taka verkjastillandi lyf sem slær því á höfuðverk. Aftur á móti er ólíklegt að skýringin á því að þú þurfir minna áfengi til þess að finna á þér sé af völdum lyfsins. Það er ýmislegt sem getur haft áhrif á frásog áfengis t.d. magn fæðu í meltingarvegi. Þú þarft minna áfengi til þess að fá sama magn í blóði af áfengi ef þú drekkur á fastandi maga, þ.a. einhver slík áhrif eru líklegri heldur en áhrif frá lyfinu. Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur