Parkódín og áfengi?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Getur ekki verið lífshættulegt að taka inn lyfið parkódín og áfengi samtímis ? Einn ættingi minn gerir það og fær út úr því vímuáhrif. Eru ekki líka mikil fráhvarfsáhrif eftir slíka langtíma misnotkun ? Ef svo er - í hverju lýsa fráhvörfin sér ? Fyrirfram þökk fyrir svarið.

Svar:


Parkódín inniheldur 2 virk innihaldsefni, kódein 10 mg og parasetamól 500 mg. Bæði þessi efni eru verkjastillandi og gefa meiri verkjastillandi verkun saman heldur en t.d. Paratabs sem inniheldur 500 mg parasetamól eitt og sér. Kódein er skilt morfíni en með mun minni virkni heldur en það. Kódein getur í stórum skömmtum valdið sljóvgleika og syfju. Til þess að fá sömu virkni og við það að taka morfín þarf að taka mjög stóra skammta af Parkódíni (meira heldur en ráðlagt er, (ráðlagður dagskammtur er 1-2 töflur 3-4sinnum á sólarhring)). Það er í raun ekki hægt en menn virðast reyna. Parasetamól í stórum skömmtum getur valdið lifrarskemmdum. Það að taka meira en ráðlagðanskammt af Parkódíni eykur hættuna á að parasetamólið í því geti valdið lifrarskemmdum. Ekki hjálpar áfengið. Þannig getur það að taka stóran skammt/skammta valið lifrarbilun og er þ.a.l. lífshættulegt. Það er því mun vænlegra fyrir ættingja þinn að láta af þessari iðju og leita sér hjálpar sem fyrst. Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.