Er hægt að kaupa Melatónín?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er hægt að kaupa Melatónín er töfluformi í lyfjaverslunum ykkar? Langar að prófa það v. svefntruflana.

Svar:

Sæll

Nei melatónín hefur ekki markaðsleyfi á Íslandi, og má því ekki selja það í lausasölu eða út á hefðbundna ávísun á lyfseðli frá lækni. Melatónín hefur þó verið notað í gegnum árin á Íslandi en þá þarf læknir að sækja um leyfi (undanþágu) frá Lyfjastofnun til þess að ávísa því. Lítið hefur verið um slíkt síðustu ár, en var eins og áður sagði nokkuð um notkun fyrir ca 3-5 árum. Möguleiki er að slíkt gangi í þínu tilfelli.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.