Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Er öll út úr mýbitum og er komin með ofsakláða á handleggi og fætur. Hvað get ég gert til þess að draga úr þesum óþægindum?
Svar:
Þú getur tekið inn ofnæmistöflur eins og t.d Loritin eða Histasin en þú getur fengið bæði þessi lyf án þess að hafa lyfseðil. Einnig getur þú keypt krem sem heitir Mildison til þess að bera á bitin og máttu bæði nota kremið og ofnæmistöflurnar saman ef þú ert mjög slæm.
Kær kveðja
Guðrún
Lyfjafræðingur