Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hafið þið heyrt af nýrri meðferð sem notuð er í USA við krónískum bólgum í ennis og kinnholum? Ég fann á vefnum upplýsingar um meðferð sem heitir SinuNEB sem felst í því að sýklalyf er gefið í nefúðaformi með sérstöku tæki. Þar er sagt að sýklalyfið skili sér betur á þann stað sem því er ætlað að virka en með hefðbundnum sýklalyfjameðferðum. Mig langar að vita hvort að möguleiki er á að fá þetta tæki hér á landi. Ef þetta tæki er ekki til - sem ég held ekki - væri möguleiki á að fá það flutt inn? Eins
Svar:
Sæl
Þessari meðferð hafði ég aldrei heyrt af áður. Skoðaði þessar vefsíður sem þú sendir og reyndi að verða mér úti um upplýsingar.
Þetta tæki er ekki á markaði á Íslandi mér vitanlega. Veit ekki til þess að nokkuð fyrirtæki hafi umboð fyrir þetta tæki hér á landi. Ef þú finnur lækni sem hefði trú á þessu þá væri möguleiki fyrir hann að leita til einhvers innflytjanda og flytja inn þessa meðferð. Þetta gæti orðið nokkuð erfitt í framkvæmd.
Ef við förum svo út í að ræða hvort þetta gæti verið einhver "töfralausn" fyrir þig og sé þess virði að reyna, þá á ég erfitt með að meta það. Þær rannsóknir sem á bak við notkun þessarar meðferðar standa eru við fyrstu sýn ekki mjög ítarlegar. Þær sem til eru og sýna fram á gagnsemi eru framkvæmdar á mjög litlum sjúklingahóp. Engu að síður er þetta viðurkennd meðferð af tryggingum í BNA og af FDA, þannig að eitthvað gagn hlýtur hún að gera.
kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur