Er hægt að fá járneitrun?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Svessi spurði:
Er hægt að fá járneitrun? T.d. við inntöku á stórum skömtum af járn-lyfjum, eða eins og ég, að vera innan um mjög, mjög fínt járnryk (ég nota hlífðarbúnað).

Svar:

Járn í líkamanum er notað í hemóglóbín (sameind í rauðum blóðkornum sem bindur súrefni), mýóglóbín (sameind sem geymir súrefni í vöðvum), og í ýmis prótein eða ensím. Það járn sem er umfram þörf líkamans er að mestu geymt í lifur og í hvítum blóðkornum. Upptaka járns úr fæðu eykst þegar járn skortir, en minnkar þegar birgðir eru nægar. Hjá heilbrigðum einstaklingi ætti járn því ekki að safnast í of miklu magni í líkamanum, en viss erfðasjúkdómur (haemochromatosis, járngeymdarkvilli) veldur óeðlilegri uppsöfnun járns og líffæraskemmdum í kjölfarið.

Óæskileg áhrif mikillar inntöku járns hjá annars heilbrigðum einstaklingum eru því bundin við meltingarveginn - brjóstsviði, magaverkur, ógleði og niðurgangur eða hægðatregða.

Járnryk ætti ekki að valda járneitrun eða einkennum of stórra járnskammta - það er einungis hætta á skaðlegum áhrifum ryksins sjálfs, s.s. ertingu frá öndunarfærum, sem þú kemst væntanlega fyrir með að nota viðeigandi hlífðarbúnað.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.