Spurning

Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Spurt og svarað > Svimi við æfingar
Svimi við æfingar
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Mig svimar við æfingar (hlaup) þó blóðþrýstingur sé í lagi. Hef hins vegar borðað grænmeti \"eins og skepna\" í 3 ár en líka kjöt og fisk. Getur grænmetisátið haft áhrif á blóðmagn í líkamanum?
Græni.

Svar:

Sæll Græni

Holl og fjölbreytt fæða ásamt reglulegri hreyfingu er undirstaða góðrar heilsu. Þetta virðist vera í góðum málum hjá þér.

Algeng ástæða fyrir svima er blóðskortur. Járnblóðskortur er algengasta tegund blóðskorts, en hlutverk járns er m.a. að flytja súrefni til vefja líkamans, þar sem það nýtist til orkumyndunar. Skortur á járni veldur gjarnan máttleysi og minnkuðu þoli.

Í þínum sporum myndi ég fara í blóðmælingu og fá úr því skorið hvort járnskortur sé ástæða svimans. Þessar mælingar eru m.a. framkvæmdar á heilsugæslustöðvum. Frekari upplýsingar um járn er að finna hér.

Vona að þetta svar komi þér að notum.
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur