Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Sæll Friðþjófur. Fyrir ári þá var ég með rosalega mikið hárlos og ég fór til læknis út af því. Hann sagði að það væri járnskortur og ég var send í blóðprufu og ég mældist með 5, sem mér skilst að sé mjög lítið. Ég borða ekki kjöt. Ég byrjaði að borða meiri fisk og taka járnpillur og mér leið miklu betur. Núna er ég erlendis í námi og ég er komin með mikið hárlos aftur. Ég hef enga orku og ég sef mjög mikið. Ég er miklu þreyttari núna en þegar skorturinn mældist fyrir ári. Mér finnst fiskurinn hérna vondur o
Svar:
Ef þú hefur mælst með 5 í járni eins og það er mælt á hefðbundinn hátt telst það lágt. Eðlilegt viðmiðunarmörk fyrir járn: Karlar: 10-33 µmol/L. Konur: 8-31 µmol/L.
Það er því mikilvægt fyrir þig að hafa sambandi við lækni til þess að fá á hreint hvað gera skal.
Það eru til ýmsar orsakir fyrir járnskorti og ýmis viðbrögð við honum. Það er mögulegt að stungulyf geti hentað þér vel. En þau eru mjög dýr og sjaldan notuð.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur