Spurning

Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Spurt og svarað > Ál og Alzheimer sjúkdómur
Ál og Alzheimer sjúkdómur
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Svitastöðvandi efni sem innihalda ál. Mig langar til að vita hvað þér finnst um Driclor og slík efni. Ég nota núna Driclor og það hefur vægast sagt breytt lífi mínu til hins betra. En ég hef áhyggjur af alzheimerstengingunni við álið og hef verið að fylgjast með umræðum víðsvegar á netinu og allir virðast vera með sitt hvora skoðunina á hvort svitastöðvunarefni sem innihalda ál séu hættuleg. Er fáanlegt hér á landi svipað efni sem inniheldur zinc í stað áls, það er til úti veit ég. Með hverju mælir þú? Takk

Svar:

Þetta er nú að verða nokkuð gömul umræða án þess að endanleg niðurstaða hafi fengist. Það er skiljanlegt í ljósi þess að margt er óljóst varðandi Alzheimer sjúkdóminn.

Um miðjan síðasta áratug töldum menn sig hafa sýnt fram á það að ál myndi ekki hafa áhrif á Alzheimer. Í dag held ég að alment sé það viðurkennt að ál geti hugsanlega verið áhættuþáttur varðandi Alzheimer en ekki almennt viðurkennt að það sé orsök eins og fyrstu hugmyndir voru um. Mér vitanlega er ekki til nein rannsókn sem sýnir fram á að ál valdi Alzheimer, en það eru til margar dýrarannsóknir (rottum) sem sýna að Ál í miklu magni í blóði geti valdið skemmdum í miðtaugakerfi og einkennum líkt og sést í Alzheimer í mönnum.

Nú er spurningin hvort ég telji ál í svitastöðvunarefni hættulegt. Svarið er þetta. Miðað við þá vitneskju sem ég hef í dag tel ég tengsl áls við Alzheimer sjúkdóm og áhættuna við það að nota það í svitameðali útvortis séu fremur lítil ef þá einhver. Það getur þó vel verið að sýnt verði fram það í framtíðini, en eins og er, er fremur fátt sem bendir til þess að ál valdi Alzheimers.

Það er áhugavert að þú skulir benda á zinc í stað áls en zinc hefur einnig verið "tengt" Alzheimer á svipaðan hátt og ál. Það virðist þó vera enn minna á bak við það.

Það eru til svitastillar án áls. En ál er mjög algengt í þessum vörum og án áls virðast þeir ekki eins kröftugir.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur