Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
dude_ spurði:
Hæ hæ! Ég hef verið á roaccutan (40 mg/dag) í tvo mánuði. Bólunum hefur fækkað MJÖG mikið (svona 90% farið) en ég er orðin geðveikt rauð í andlitinu, þar sem bólurnar voru. Ég las á amerískri heimasíðu að lausasölu krem sem innihalda "glycolic acid" hraði því mjög að húðin verði eðlilega ljós. Mínar spurningar eru því þessar: Er það satt að þetta efni virki vel gegn rauðri húð, í hvaða kremum er þetta þá, og er í lagi að taka þetta með roaccutan? Takk fyrirfram dude_.
Svar:
Hey dude
Glycolic sýra er lífræn sýra sem hefur lengi verið notuð í krem og lausnir m.a. til þess að meðhöndla brúna bletti og litaóreglu í húð. Hún virkar sem slík, og gæti mögulega hentað þér. Hún er til hér á landi í Neostrata línunni. Ennnn notkun hennar á að vera undir eftirliti húðsjúkdómasérfræðings.
Það er því ráðlagt fyrir þig að hafa samband við lækninn sem ávísaði Roaccutan fyrir þig og ræða þennan roða og hugsanlega önnur óþægindi sem geta stafað af notkun lyfsins. Slíkt væri alveg eðlilegt að gera. Roaccutan hefur ýmsar aukaverkanir sem ráðlagt er að vera á verðbergi gagnvart. Þessar aukaverkanir eru mjög vel þekktar en það gerir notkun lyfsins mögulega.
Roðinn stafar mögulega af völdum lyfsins. Hann gengur til baka af öllu eðlilegu, og því kannski ekki ástæða til þess að vera að nota Neostrata á meðan notkun lyfsins stendur að mínu mat.
Kveðja
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur