Erting vegna Skinoren?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

inequality spurði:
Hæ Ég hef verið að nota "skinoren" í ca. 2 vikur við unglingabólum. Fyrstu vikuna þurrkaði kremið húðina ógeðslega mikið upp, en það lagaðist. Vandamálið sem ég hef núna er það að ca. klukkustund eftir að ég hef sett það á mig verður húðin einhvernveginn geðveikt feit, og það lítur út eins og ég sé í einhverju svitakasti. Kremið virkar ekki mjög vel, og ég er ekki farinn að sjá mikinn árangur. Er þetta allt eðlilegt?

Svar:

Það er eðlilegt að Skinoren geti valdið ertingu í húð sérstaklega í byrjun meðferðar. Það sem þú lýsir er líklega eitthvað slíkt. Ef þú sérð fram á að þetta lagist ekki er rétt fyrir þig að hafa sambandi við þinn lækni út af þessu, þetta hljómar nú samt ekki alvarlegt. Árangur meðferðar kemur venjulega ekki fram fyrr en eftir a.m.k. 4 vikur þannig að ekki örvænta strax. Lyfið er yfirleitt notað í nokkra mánuði í senn.

Áður en Skinoren er borið á ætti að hreinsa húðina vandlega með vatni eða mildum húðhreinsi. Lyfið er borið þykkt á og nuddað varlega inn í húðina. Það er mikilvægt að nota lyfið reglulega allan tíman sem meðferð stendur yfir.

Kveðja
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.