Kossageit

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ella spurði:
Hvaða lyf á að nota við Kossageit,er nóg að nota Zovir??

Svar:

Kossageit er bakteríusýking í húð, því er ekki hentugt að nota Zovir eða önnur álíka veirulyf. Því þarf að hafa samband við lækni til að fá sýklalyf, annað hvort til inntöku eða til útvortis notkunar. Einnig er gott að þvo varlega hrúðrið af kossageitinni með mildri sápu og volgu vatni. Þetta er smitandi sjúkdómur þannig að best er að nota ekki sama handklæði og aðrir í fjölskyldunni til að koma í veg dreifingu sýkingarinnar.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.