Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
GR spurði:
mín spurning er, ég svitna svo mikið sérstaklega þegar ég er í kringum fólk og í vinnunni. Þegar ég fer í sturtu þá byrja ég að fá kvíða að byrja svitna og er orðin sveitt áður en ég er komin í fötin. þegar ég fer í þrönga boli þá svitna ég og neyðist til að vera í peysu yfir,hvítu bolirnir eru með gula bletti undir höndunum. hvað get ég gert???
Svar:
Of mikil svitamyndun er nokkuð algengt vandamál. Þetta er þó vandamál sem hægt er að taka á með ýmsum ráðum. Til eru áburðir sem innihalda aluminum klórið og hefur það kröftugt svitastillandi áhrif. Einnig er spurning um hitastig vatnsins í sturtunni, því ef vatnið er mjög heitt þá byrjar líkaminn strax að svitna að lokinni sturtu. Svitamyndun getur mögulega tengst kvíða þannig í svona tilfelli er svitinn bæði orsök og afleiðing þessa kvíða. Þannig að við svona aðstæður hefur skapast vítahringur sem verður að slíta.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur