Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
KB spurði:
Hvernig losnar maður við sveppasýkingu á húðinni?
Svar:
Best er að leita læknis til að fá greiningu á sýkingunni og réttu meðferðina samkvæmt þeirri greiningu. Í lausasölu er til hin ýmsu lyf ætluð sveppasýkingum í húð. Það sem mest er notað kallast Lamisil, og hefur kröftuga sveppadeyðandi verkun á húðsveppi, myglusveppi og ákveðna tvímynda sveppi. Lyfið er borið á sýkta svæðið einu sinni á dag og er vika vanalega talin nægileg meðferð.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur