Ný lyf við iðraólgu (Irritable Bowel Syndrome)

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

birn spurði:
Er nokkur ný lyf í sjónmáli gegn iðraólgu? Hvaða lyf er best að nota ef einkenni eru mikil?

Svar:

Sæl/Sæll Þar sem einkenni í iðraólgu geta verið mismunandi, t.d. niðurgangur hjá sumum vs. hægðatregðu hjá öðrum er mjög erfitt að fyrir mig að mæla með einhverjum lyfjum fyrir þig. án frekari upplýsinga. Algengustu einkenni eru, Verkir, uppþemba, vindgangur, niðurgangur eða hægðagtegða. Eða jafnvel hægðatregða annan daginn og niðurgangur hinn. Sjúkdómurinn er einungis starfsleg truflun.

Sum lyfjana verka á krampana, önnur á verkina, og niðurganginn (Imodium). Imodium verkar aftur á móti ekkert á verkina. Margt varðandi iðraólgu er ekki þekkt og gerir það meðferð mjög erfiða. Ef þú veist ekki orsök sjúkdóma ertu alltaf að meðhöndla einkenni þeirra og ert alltaf skrefi á eftir, það á við um þennan sjúkdóm.

Nýlegar rannsóknir á þeim meðferðum sem notaðar eru í dag gefa til kynna að ekki nema mjög fá lyf hafa staðfest notagildi sitt gegn iðraólgu. Ég minntist á Imodium í tilfellum þar sem niðurgangur er ráðandi. Síðan eru lyf eins og Císapríð notuð þegar hægðatregða er ráðandi, þetta lyf er þó að detta úr "tízku" vegna aukaverkana og ný skyld lyf í þróun.

Þríhringlaga geðdeyfðarlyf eins og Amilín hafa sannað gildi sitt. Nýrri lyf eins og SSRI þ.e. sértækir serótónin endurupptöku blokkarar eru ekki eins vel rannsökuð. Þó eru til rannsóknir sem sýna að citalopram sem fækkaði fjölda verkja daga og minnkaði alvarleika verkja. SSRI lyf hafa þó þann ókost að geta valdið hægðatregðu og því ber að varast þau þegar hægðatregða fylgir iðraólgu. Frekari þörf er fyrir rannsóknir á notkun SSRI lyfja við iðraólgu til þess að staðfesta gildi þeirra að fullu.

Heilræði
Meðferð felst helst í breyttu mataræði stundum samfara lyfjagjöf. Sum fæða virðist geta valdið versnun eins og t.d. orkuríkar máltíðir, fita, súkkulaði, mjólkurafurðir, áfengi og kaffi í miklu magni. Oft virkar að borða lítið í einu og þá oftar, og borða trefjaríkan mat hollan og fjölbreyttan.

Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.