Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
n.n. spurði:
Sonur minn sem er 8 ára á oft svo erfitt með að hafa hægðir, hann situr tímunum saman á klósettinu og rembist og lítill sem enginn árangur. Eru til einhver hægðarlyf fyrir börn á þessum aldri?
Svar:
Microlax er hægðalosandi lyf sem virkar mjög fljótt - áhrif fást á 5-15 mínútum eftir notkun lyfsins. Microlax er innhellislyf sem er sprautað í endaþarminn. Lyfið hentar þó aðeins við tilfallandi hægðatregðu en ekki til langtímanotkunar. Laktúlósa hentar til notkunar í lengri tíma, en áhrif þess lyfs koma ekki fram fyrr en eftir 1-2 daga. Laktúlósa er ætluð til inntöku, skammtur fyrir 8 ára barn er 15 ml á dag.