Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Sv. spurði:
Ég hef niðurgang á morgnana og stundum eftir aðrar máltíðir ef ég er orðin svöng og borða hratt þá fæ ég verki og svo kemur allt. Hef farið í speglun sem ekkert kom út úr. Hvað er til ráða?
Svar:
Orsakir niðurgangs geta verið fjölmargar. Ýmsar meltingafærasýkingar valda niðurgangi en er þá oftast um að ræða niðurgang sem varir stutt. Í þeim tilvikum miðast meðferð fyrst og fremst við sýkinguna sjálfa en einnig er lyf sem stöðvar niðurganginn, Imodium, með því að draga úr þarmahreyfingum. Ef um tíðan niðurgang er að ræða þá getur verið um það að ræða að viðkomandi þoli ekki ákveðnar fæðutegundir eins og t.d. mjólkurvörur, gluten í hveiti eða annað slíkt. Því er best að endurskoða mataræðið vel og prófa að sleppa t.d. mjólkurvörum í einhvern tíma og athuga hvort líðanin verður betri. Einnig er gott að breyta matarvenjunum þannig að borða frekar oftar, allt að 6 sinnum á dag, en minna í hvert skipti.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur