Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Erla spurði:
Góðan dag, Ég er með mikið bakflæði og magabólgur og er því iðulega með brjóstsviða. Um daginn var mér sagt að setja matarsóda í vatn og drekka það. Þetta virkar mjög vel en ég var að velta því fyrir mér hversu hollt/óhollt þetta væri. Gæti ég hætt að taka dýru lyfin mín og bara drukkið vatn með matarsóda??
Svar:
Í matarsóda er natríumbíkarbónat en það er efni sem bindst sýru, þannig að þetta er ekkert nýtt heimilisráð. Það er því ekkert ólíklegt að þó hafir fundið bata í skamman tíma við það að drekka þetta. Hættan við þetta er að ef þú neytir mikils matarsóda í langan tíma er mögulegt að líkamin taki eitthvað af honum upp og það geti síðan haft áhrif á sýrustig í blóði. Það þarf samt örugglega töluvert mikið magn til þess að vera skaðlegt.
Ég tel því að hefðbundin lyfjameðferð henti mun betur. Þú reyndar nefnir ekki hvaða lyf þú ert að taka, en nefnir að þér finnist þau dýr. Vissulega eru sum lyf dýr. En það er eitthvað sem þú skalt ræða við þinn lækni. Það er ýmislegt hægt að gera til þess að draga úr kostnaði eins og t.d. að fá samþykkt svokölluð 100 daga kort en þau tryggja að tryggingastofnun ríkisins heimilar að afgreiða þig með 100 daga skammt af lyfi sem annars má einungis afgreiða 30 daga skammt af. Þetta á þó ekki við um öll magalyf. Það er líka mjög mikilvægt fyrir lækninn þinn að vita ef þú ert að efast um að lyfjameðferðina og að þér finnist hún dýr. Hann getur þá metið hvort rétt sé að endurskoða hana í samráði við þig.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur