Frunsur

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Eru frunsur smitandi, eða er þessi baktería í okkur öllum?

Svar:

Frunsur er sýkingar af völdum Herpes simplex veira. Talið er að meirihluti fólks hafi þessa veiru í sér en þó er misjafnt hversu viðkvæmt fólk er fyrir sýkingu. Veiran liggur að jafnaði í dvala en getur valdið sýkingu við breyttar aðstæður t.d. við streitu, sólbruna og fleiri áreitum. Frunsurnar eru smitandi og því ber að sýna varkárni. Frunsa gefur oftast boð á undan sér, sláttur og erting verða á svæðinu þar sem hún er að myndast. Á þessum tíma er best að nota frunsukremin t.d. Zovir og geta þau minnkað útbreiðslu sýkingarinnar og flýtt fyrir bata.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.