Spurning

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Spurt og svarað > Hóstasaft fyrir 7 mánaða barn
Hóstasaft fyrir 7 mánaða barn
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hvaða hóstasaft get ég gefið 7 mánaða gömlu barni sem sefur ekki á nóttunni vegna hósta? Hann er 9,2 kg.

Svar:

Ef hóstinn er þurr kemur til greina að nota hóstastillandi mixtúru, en aðeins samkvæmt læknisráði fyrir svona ungt barn. Ef hóstinn hefur verið í nokkra daga er full ástæða til að hafa samband við lækni til að komast að orsök hóstans.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur