Spurning

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Spurt og svarað > Er eitthvað til sem minnkar sársauka hjá barni sem er að taka tennur?
Er eitthvað til sem minnkar sársauka hjá barni sem er að taka tennur?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sólveig spurði:
Þannig er að 1 árs gömul dóttir mín er að taka tennur, allur gómurinn er mjög bólginn (jaxlar). Gætir þú mælt með einhverju sem gæti minnkað sársaukann því hún sefur mjög lítið vegna þess.

Svar:

Það er til lyf í lausasölu sem er sérstaklega ætlað gegn óþægindum við tanntöku hjá börnum. Lyfið heitir Bonjela, þetta er staðdeyfandi og sótthreinsandi hlaup sem er borið í munninn og má nota fyrir börn eldri en 4 mánaða.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur