Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Getur reglulegt sund breytt sýrustigi í leggöngunum og orsakað þannig sveppasýkingu hjá þeim sem eru viðkvæmir fyrir henni?
Svar:
Reglulegt sund á nú að vera í lagi þegar kemur að sveppasýkingu í leggöngum. Það sem helst hefur áhrif og veldur því að jafnvægi í bakteríuflóru legganganna getur raskast er raki og hiti. Að liggja löngum stundum í heita pottinum er þess vegna ekki æskilegt og svo er nauðsynlegt að þurrka sér vel á þessu svæði þegar maður kemur upp úr. Einnig er mikilvægt að nota ekki sterka sápu.
Ef að kona er viðkvæm fyrir því að fá sveppasýkingu og finnst sundið vera að hafa neikvæð áhrif, þá mæli ég með hylkjum sem heita Vivag. Þau innihalda mjólkursýrugerla (acidophilus) og eru sett upp í leggöngin einu sinni á dag eftir þörfum til þess að halda góðu jafnvægi á bakteríuflórunni og koma í veg fyrir sýkingu. Hylkin fást í apótekum Lyfju.
Kveðja,
Jóna Valdís
Lyfjafræðingur