P-pillan án mánaðarlegra blæðinga?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég las spurningu hjá þér um frestun tíðablæðinga með pillunni þar sem þú vitnaðir í svar annars sérfræðings. Það svaraði ekki alveg því sem ég vil vita um málið, þ.e. hvort frestun tíðablæðinga með notkun pillunnar til langs tíma hafi varanleg óafturkræf áhrif á frjósemi. Auðvitað veldur það truflunum á tíðahringnum en það eru einmitt æskileg áhrif! Ég hef verið að fresta tíðablæðingum með pillunotkun í næstum 2 ár þannig að ég fer á túr á ca. 3-4 mánaða fresti og mér hefur sjaldan liðið eins vel! Ég hef en

Svar:

Sæl Asha Mjög góð spurning ekki síst í ljósi þess að þessu hafa "sérfræðingar" verið að velta fyrir sér í nokkur ár, þ.e. hvort slík samfeld notkun á pillunni geti verið skaðleg. Það að nota getnaðarvarnarpilluna samfellt og losna þannig við tíðir hefur verið töluvert í umræðunni síðastliðin ár. Það hefur þó einungis verið ráðlagt að gera slíkt við sérstakar aðstæður (t.d. brúðkaup o.s.frv.) og þá einungis í hámark 2 mánuði samkvæmt framleiðendum. Það er þó ýmislegt sem bendir til þess að það nota p-pilluna samfellt geti verið ákjósanlegur kostur. Benda sérfræðingar þá á að tíðni aukaverkana lækki hjá konum sem taka pilluna samfellt samanborið við konur sem taka mánaðar hlé. En algengt er að óþægindi tengd pillunni komi fram í viku hléinu sem tekið er til að framkalla blæðingar. Margir hafa þó bent á að þessi einkenni geti stafað af því sem kalla mætti "eðlilega tíðaverki". Einnig hefur verið bent á að það sé ekki endilega eðlilegt að kona sé á blæðingum á 28 daga fresti og benda á að nútíma kona hafi um 450 egglos um ævina en konur fyrr á tímum vegna fjölda meðganga, og brjóstagjafar höfðu einungis 160. Allir eru þó sammála um það að almennt heilbrigði kvenna hafi aukist. Það eru í raun ekki þekktir margir ókostir við það að nota pilluna samfellt í 2-4 mánuði án hlés, helsti ókosturinn er aukinn kostnaður fyrir einstaklinginn en fleiri töflur þarf til samfelldrar notkunar. Það er þó rétt að taka fram að í dag hafa mjög fáar rannsóknir verið gerðar á slíkri notkun. Þær eru þó í gangi og fátt sem bendir til þess að þetta geti valdið skaða enn sem komið er. Ég veit til þess að nokkrir sérfræðingar á Íslandi hafa tekið þetta upp. Og veit einnig til þess a.m.k. einn framleiðandi getnaðarvarnarpillunnar er að sækja um leyfi fyrir slíkri notkun í Bandaríkjunum. En framleiðandinn verður að styðja slíkt með rannsóknum. Þeir sem mæla með slíkri samfeldri notkun mæla með að notuð sé einfasa pilla en það er p-pilla sem inniheldur sama hlutfall estrógen afleiðu og prógesterón afleiðu í öllum pillunum sem teknar eru. En svo ég svari nú spurningunni beint án málalenginga þá tel ég mjög ólíklegt að það að nota lágskammta einfasa p-pillu samfellt í 2-4 mánuði í senn geti valdið ófrjósemi, en á móti kemur að það eru að mínu mati ekki enn til góðar rannsóknir til þess að styðja fullyrðingar um slíka notkun, þó flest bendi til að slíkt sé óhætt, og jafnvel jákvætt eins og málin standa í dag.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.