Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég var að hefja töku á CERAZETTE míni piluni eða brjóstapillu, þar sem ég er með barn á brjósti. Spurningin er; Hvenær fer hún að virka, það er að segja hvenær er hægt að stóla á hana sem getnaðarvörn???
Svar:
Cerazette byrjar að virka strax ef hún er tekin rétt frá byrjun. Töflurnar á að taka á sama tíma sólarhringsins hvern dag þannig að ávallt líði 24 klst. á milli töku tveggja taflna. Fyrstu töfluna á að taka á 1. degi tíðablæðinga. Síðan á að taka samfellt 1 töflu daglega án tillits til hugsanlegra blæðinga. Byrja skal á nýju töfluspjaldi strax og allar töflurnar af fyrra spjaldinu hafa verið teknar. Þegar skipt er yfir frá annarri tegund ?minipilla? getur konan byrjað að taka lyfið hvaða dag sem er án þess að gera töfluhlé. Til að koma í veg fyrir þungun eftir fæðingu má byrja töku lyfsins áður en blæðingar byrja aftur. Hafi liðið meira en 21 dagur skal útiloka þungun og nota aðra getnaðarvörn samtímis fyrstu vikuna. Eftir fósturlát á fyrsta þriðjungi meðgöngu skal byrja notkun lyfsins strax. Í því tilviki er ekki nauðsynlegt að nota aðra tegund getnaðarvarna. Kveðja Friðþjófur Már lyfjafræðingur