Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Góðan dag. Ég heiti Hildur og mig langaði að spurja þig hvort Diclocil (sem er sýklalyf sem ég er á núna) hafi áhrif á Mercelon getnaðarvarnarpilluna. Ef svo er þarf ég þá að taka neyðargetnaðarvarnarpillu ef samfarir hafa átt sér stað eftir að nottkun Diclocil var hafin. Virkar þá neyðargetnaðarvarnarpillan? Með fyrirfram þökkum Hildur
Svar:
Sæl Mjög góð spurning. Svarið er Já. Penicillín eins og Dicolocil geta haft áhirf á þarmaflóruna, en það getur síðan haft áhrif á endanlegt frásog getnaðarvarnataflna. Getur dregið úr virkni þeirra, aukið líkur á þungun, og valdið óreglu á tíðahringnum. Mjög algengt er þessi vitneskja berist ekki konum sem eru að taka p-pilluna. Líklegast er það vegna þess að almennt er frekar ólíklegt að þetta gerist. Ekki er nákvæmlega vitað hvernig þetta gerist. Þessa vitneskju er þó t.d. að finna í bæklingnum sem hægt er að nálgast í Lyfju varðandi Mercilon og Marvelon p-pilluna. Menn hafa eitthvað haft lítinn áhuga á þessu síðustu ár en 1985 voru þekkt 32 tilfelli þar sem penicillín var talið hafa valdið þungun hjá konum sem voru að taka p-pilluna. Af þeim voru 25 tilfelli þar sem konur tóku ampicillin, sem er ekki notað lengur hér á landi. Hvað varðar það að taka neyðargetnaðarvarnapilluna samfara p-pillunni og Diclocil. Mér finnst það frekar óráðlegt. Mæli frekar með að notaðar séu aðrar getnaðarvanir eins og t.d. smokkur. Í þann skamma tíma sem þörf er á því. Erum í mesta lagi að tala um 1 mánuð. En Mercilon veitir um 100% öryggi ef hún er tekin rétt frá fyrsta degi sem blæðingar hefjast. Það að vera að taka neyðargetnaðarvörn ofan í p-pilluna finnst mér óæskilegt. Í neyðargetnaðarvörn er töluvert af hormónum og þau trufla þá venjulegu p-pillumeðferð sem er í gangi. Í ofanálag er möguleiki að Diclocil sé að hafa áhrif á p-pilluna sem flækir málin enn meir. Endar í einhverskonar hormónaflækju sem erfitt er að spá fyrir um hvenær tekur enda, eða hver áhrifin verða. Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur Lyfju Kringlunni