Trinovum, blæðingar og óþægindi?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Góðan dag,

Ég byrjaði fyrir 2 mánuðum á pillu sem heitir Trinovum, ég hef aldrei verið á pillunni áður og er 26 ára, en ég er núna á spjaldi nr 2 enn í bæði skiftin hefur blætt í geng, nema núna er ég á rosalega miklum blæðingum og er búin að vera síðan á laugardaginn á samt ekki að byrja fyrr enn á föstud. held samt áfram að taka pilluna, hef aldrei gleymt henni, tók hana einu sinni um kvöld staðinn fyrir morgun.

Og annað ég er yfirleitt með rosalega túrverki í svona 2 daga, núna er ég búin að vera

Svar:

Sæl Nú er þekkt að Trinovum getur valdið óþægindum í byrjun t.d. óreglulegum blæðingum, spennu í brjóstum, ógleði ofl. Þessi óþægindi eiga að vera væg og eiga að ganga yfir á 2-4 mánuðum. Þetta er "eðlilegt" og hendir í 10-30% tilfella. Nú lýsir þú þessu sem meiru heldur en vægum óþægindum, en erfitt er fyrir mig að meta það. Það að gleyma að taka pilluna daglega getur haft þau áhrif að hún virki ekki sem skyldi. Mjög mikilvægt er að taka p-pilluna reglulega. Réttast er fyrir þig að hafa samband við lækninn þinn varðandi þessi óþægindi til öryggis. Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.