Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hæ,hæ. Ég er búin að vera á brjóstapillunni Exlutona og er ný hætt með barnið mitt á brjósti og ég byrjaði að hafa blæðingar líka í dag, á ég að fara beint yfir í Triquilar pillunna í dag eða bíða með það þangað til ég er hætt að hafa blæðingar? Með fyrirfram þökk :o)
Svar:
Sæl Já, þú skalt taka fyrstu Triquilar töfluna í dag. Þegar skipt er af annari tegund yfir í Triquilar, hvort sem það er af "21-daga" eða "28-daga" pakkningu, skal hefja töku á fyrsta degi blæðinga. Kveðja, Heimir Þór Andrason