Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Góðan daginn. Getur stress og kvíði haft áhrif á virkni getnaðarvarnarpillu? Ég er á Microgyn. Takk fyrir, stressuð.
Svar:
Vægt stress og kvíði ætti ekki að hafa áhrif á getnaðarvarnarpilluna sem slíkt. Þó er möguleiki ef einkenni eru mjög alvarleg og hafa áhrif á eðlilega starfsemi meltingarvegar, að þau leiði til niðurgangs. Þá er fræðilega séð mögulegt að það geti haft áhrif á upptöku hormóna í meltingarveginum og þannig minnkað virkni pillunnar. Þetta er þó frekar langsótt.
Ef þú þjáist af stressi og kvíða er það eitthvað sem þú ættir að leita þér hjálpar með. Það er þó eðlilegt að finna til stress og kvíða í skamman tíma t.d. í próftíma, og er eðlilegt og jafnvel hjálplegt viðbragð til að auka afköst. Það er þó ekki eðlilegt og holt að vera stressuð og kvíðin í langan tíma og eitthvað sem þú ætti að leita þér hjálpar með ef svo hefur verið.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur